Vantar vefsíðu núna?
Við reddum því, sjáum um allt sem þarf. Áralöng reynsla í vefsíðugerð auk þess sem við aðstoðum við kaup á léni og vefsvæði (hýsingu) sem tryggir bestu upplifun notandans. Bjóðum einnig aðstoð fyrir lengra komna sem vantar smá handleiðslu til að klára málin.
Hafðu samband Núna

Getum við aðstoðað?

Við leggjum áherslu á að greina verkefnin og sérhæfum okkur í vefsíðugerð og leitarvélabestun (SEO) með WordPress vefumsjónarkerfinu ásamt WooCommerce vefverslunarkerfinu. Við sérhæfum okkur í að endurgera eldri vefi og að uppfæra Joomla! vefi yfir í WordPress. Útvegum lógó og myndir eftir þörfum.

www icon
Lén

Útvegum lén

Vinsælasta vefumsjónarkerfið í dag er án efa WordPress. Það býður uppá mikla möguleika við hönnun og mjög notendavænt, Bjóðum bæði ódýra pakka og sérsniðna vefi með t.d WooCommerce vefverslun.
wordpress logo icon
Vefsíðugerð

WordPress

Vinsælasta vefumsjónarkerfið í dag er án efa WordPress. Það býður uppá mikla möguleika við hönnun og mjög notendavænt, Bjóðum bæði ódýra pakka og sérsniðna vefi með t.d WooCommerce vefverslun.
truecloud computing icon
Vefhýsing - ský

TrueCloud™

Skýjalausnir auka hagkvæmni, skilvirkni og hámarka öryggi.
Frítt SSL dulkóðunar skírteini (https://) fylgir öllum vefum hýstum hjá Núna ehf.

consulting icon
Ráðgjöf

Núna

Við leggjum okkur fram við að greina verkefnin og veitum ráðgjöf í takt við þarfir viðskiptavina okkar. Markmið Núna er að veita góða þjónustu á viðráðanlegu verði og sníða lausnirnar að þörfum hvers og eins.

assistance icon
Við erum hér

Aðstoð?

Ekkert vandamál er of lítið eða stórt fyrir okkur. Engin hugmynd er út í hött. Við björgum málunum af bestu getu, bjóðum handleiðslu í gegnum síma eða smáskilaboð, allt eftir þörfum. Forritararnir okkar eru opnir fyrir alls kyns hugmyndum og finna bestu lausnina hverju sinni.
nerd icon
Víðtækar veflausnir

Hugsið Núna

Vanti þig sérsniðnar lausnir fyrir vefinn, útvegum við þær. Við tökum að okkur innsetningu efnis, leitarvélabestun (SEO), setjum upp vefverslun og sjáum um almennt viðhald vefsins, allt eftir þörfum hvers og eins.

Um Núna ehf.

Við aðstoðum. Núna.

photo of jay c. burton

Jay C. Burton

photo of bertha g. kvaran

Bertha G. Kvaran

Fyrirtækið Núna ehf. er staðsett í Borgarnesi, rekið af hjónunum Jay og Berthu. Jay er bandarískur en hefur búið á Íslandi frá árinu 2012. Hann hefur víðtæka reynslu af tæknimálum, hefur áratuga reynslu af rekstri vefhýsinga og er sérlega lausnamiðaður. Bertha lærði vefsíðugerð á gamla mátan, html og CSS, en með framþróun bætti við sig sérþekkingu í Joomla! og WordPress.

Með ólíkan bakgrunn og reynslu býðst viðskipavinum okkar bæði þjónusta við þá sem lítið sem ekkert kunna í tæknimálum, sem og fyrir þá sem vilja kíkja undir húddið og kryfja tæknimálin. Bertha setur hlutina fram á skiljanlegan hátt, en ítarlegar greinar um tæknimálin er að finna á þeim hluta síðunnar sem er á ensku.

Ég (Bertha) biðst velvirðingar á að þýða ekki þann hluta sem mér finnst of tæknilegur eða kafað í smáatriðin og vona að það eyðileggi ekki upplifun ykkar af þeirri þjónustu sem við bjóðum.

Hafið Samband Núna

Við höfum ákveðið að draga saman seglin að einhverju leyti og tökum því ekki lengur við nýjum viðskiptavinum. Núverandi viðskiptavinir geta eftir sem áður haft samband við okkur hvenær sem er. Allir núverandi viðskiptavinir geta jafnframt vísað verkefnum fyrir vini, fjölskyldu og viðskiptafélaga til okkar til athugunar. Við gerum okkar besta til að koma til móts við ný verkefni en viljum einbeita okkur að því að sinna núverandi viðskiptavinum sem best.